Þjálfaramál Barcelona að skýrast

Ernesto Valverde hættir hjá Athletic Bilbao.
Ernesto Valverde hættir hjá Athletic Bilbao. AFP

Eftirmaður Luis Enrique í knattspyrnustjórastól Barcelona virðist vera fundinn, en tilkynna á um nýjan stjóra 29. maí.

Ernesto Valderde tilkynnti í dag að hann muni hætta sem stjóri Athletic Bilbao. Ýtir það undir sögusagnir um að hann muni taka við Barcelona, sérstaklega fyrst búið er að tilkynna hvenær eftirmaður Enrique verður tilkynntur.

Valverde er sjálfur fyrrverandi leikmaður Barcelona, en hann er 53 ára gamall og hefur komið Athletic meðal annars í úrslitaleik spænska bikarsins og í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar á síðustu árum. Hann hefur áður stýrt Espanyol, Olympiacos, Villarreal og Valencia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert