Real kaupir 16 ára Brasilíumann

Vinicius ásamt Robinho, fyrrum leikmanni Real Madrid.
Vinicius ásamt Robinho, fyrrum leikmanni Real Madrid. AFP

Spænska knattspyrnufélagið Real Madrid hefur gengið frá kaupum á hinum 16 ára Vinicius Junior frá Flamengo í Brasilíu. Kaupverðið er 38,7 milljónir punda og mun hann ganga til liðs við Real í júlí 2018, en þá verður hann orðinn 18 ára. 

Vinicius, sem hefur aðeins leikið 17 mínútur í meistaraflokki, spilaði sinn fyrsta leik með Flamengo 13. maí. Hann var kosinn besti maður mótsins, ásamt því að vera markahæstur, þegar Brasilía varð heimsmeistari U17 landsliða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert