Herra Roma kveður á sunnudaginn

Francesco Totti.
Francesco Totti. AFP

Ítalska goðsögnin Francesco Totti greinir frá því á Twitter-síðu sinni að leikurinn á móti Genoa á sunnudaginn verði hans síðasti leikur með Roma.

Totti, sem er 40 ára gamall, á magnaðan feril með liði Roma en hann lék sinn fyrsta leik með liðinu árið 1993.

Totti, sem oft er nefnd­ur herra Roma, hefur leikið með Roma frá því hann var 13 ára gam­all. Leikir hans með liðinu eru orðnir 783 og mörkin 307 og hann er markahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins.

Hann hef­ur einu sinni orðið ít­alsk­ur meist­ari með Roma og hef­ur unnið bik­ar­keppn­ina í tvígang en Totti hef­ur spilað í 25 ár sam­fleytt með Roma í ít­ölsku A-deild­inni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert