Hallgrímur Jónasson spilaði allan leikinn fyrir Lyngby sem vann sinn fimmta sigur í röð í dönsku A-deildinni í knattspyrnu í dag. Lyngby hafði þá betur gegn Midtjylland, 3:0 í hreinum úrslitaleik um hvort liðið myndi tryggja sér sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.
Lyngby hafnar í 3. sæti deildarinnar og Midtjylland sæti neðar. Midtjylland mætir því annað hvort Randers eða OB í einvígi um hvort liðið fái fjórða og síðasta Evrópusæti Danmerkur í ár, en þau mætast á morgun.
Hjörtur Hermannsson fékk rautt spjald eftir 11 mínútur í 2:1 tapi Bröndby gegn Nordsjælland í sömu deild. Rúnar Alex Rúnarsson lék ekki með Nordsjælland vegna meiðsla.