Segir Griezmann ekki vera á förum

Framtíð Antoine Griezmann er umtöluð.
Framtíð Antoine Griezmann er umtöluð. AFP

Enrique Cerezo, forseti spænska knattspyrnufélagsins Atletico Madrid segir að Antoine Griezmann sé ekki á förum frá félaginu, þrátt fyrir mikinn áhuga Manchester United. 

Talið er að Griezmann sé efstur á óskalista José Mourinho, stjóra United, og ku Griezmann vera opinn fyrir því að færa sig til Englands. Cerezo virðist þó hafa litlar áhyggur á því að Frakkinn færi sig um set. 

„Griezmann verður hér áfram og hann hefur sagt á Twitter að hann sé ekki búinn að skipta um félag. Allar sögusagnirnar eru rangar,“ sagði Cerezo við Marca. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert