Ter Stegen samdi við Barcelona

Marc-Andre ter Stegen.
Marc-Andre ter Stegen. AFP

Þýski landsliðsmarkvörðurinn Marc-Andre ter Stegen skrifaði í dag undir nýjan samning við Barcelona.

Te Stegen, sem er 25 ára gamall, er nú samningsundinn Barcelona fram til 30. júní 2022 en hann kom til Katalóníuliðsins frá þýska liðinu Borussia Mönchenbladbach árið 2014. Ákvæði eru í samningi Þjóðverjans að hann sé falur fyrir 180 milljónir evra.

Frá því þýski markvörðurinn kom til Barcelona hefur hann unnið níu titla með félaginu en það tryggði sér sigur í spænsku konungsbikarkeppninni á laugardaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert