Tuchel rekinn frá Dortmund

Thomas Tuchel með bikarinn sem Dortmund vann um síðustu helgi.
Thomas Tuchel með bikarinn sem Dortmund vann um síðustu helgi. AFP

Stórfréttir voru að berast úr þýsku knattspyrnunni en Thomas Tuchel hefur hefur verið rekinn úr starfi sem þjálfari Borussia Dortmund.

Tuchel tók við þjálfun Dortmund árið 2015 og undir hans stjórn hafnaði liðið í 3. sæti í þýsku deildinni á nýliðnu tímabili og varð bikarmeistari um síðustu helgi eftir sigur á Eintracht Frankfurt í úrslitaleik.

Tuchel, sem er 43 ára gamall, hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Arsenal undanfarna mánuði en það skýrist í dag eða á morgun hvort Arsene Wenger verði áfram við stjórnvölinn hjá Lundúnaliðinu.

„Ég er þakklátur fyrir tvö yndisleg, viðburðarík og spennandi ár og það er slæmt að þetta skuli ekki halda áfram. Ég þakka stuðningsmönnunum, liðinu, starfsliðinu og öllum þeim sem studdu okkur. Ég óska Dortmund alls hins besta,“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert