Spænskur landsliðsmaður á leið til Everton

Sandro Ramirez í baráttunni með U21 árs landsliði Spánverja.
Sandro Ramirez í baráttunni með U21 árs landsliði Spánverja. AFP

Enska knattspyrnufélagið Everton heldur áfram að versla og er þriðji leikmaðurinn á tæpri viku að ganga í raðir þess. Hinn 21 árs gamli Sandro Ramírez mun að öllum líkindum skrifa undir samning við Everton eftir helgi. Hann kemur til Everton frá Málaga 

Sandro kom til Málaga frá Barcelona þar sem hann spilaði 17 deildarleiki fyrir aðalliðið og skoraði í þeim tvö mörk. Spánverjinn skoraði 14 mörk og lagði upp þrjú til viðbótar í 30 leikjum með Málaga á síðustu leiktíð og hefur hann leikið með öllum yngri landsliðum Spánverja. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert