Ögmundur á reynslu hjá Bristol City

Ögmundur Kristinsson
Ögmundur Kristinsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðsmarkmaðurinn Ögmundur Kristinsson verður á reynslu hjá enska B-deildarliðinu Bristol City næstu dagana. Ögmundur er ekki inni í myndinni hjá sænska félaginu Hammarby og er honum frjálst að leita annað. 

Bristol Post greinir einnig frá því að Rúnar Alex Rúnarsson sé einnig undir smásjá enska félagsins, en Hörður Björgvin Magnússon leikur með liðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert