Viktor skoraði gegn Den Bosch

Viktor Karl Einarsson.
Viktor Karl Einarsson.

Viktor Karl Einarsson skoraði í sigurleik í hollensku B-deildinni í fótbolta í kvöld en þá var fyrsta umferð hennar leikin.

Viktor skoraði þriðja og síðasta mark Jong AZ Alkmaar í 3:1 útisigri á FC Den Bosch í 1. umferð deildarinnar. Viktor kom inn á sem varamaður á 71. mínútu og markið skoraði hann á 89. mínútu. 

Viktor, sem er tvítugur, hefur leikið með vara- og unglingaliðum AZ undanfarin ár og var á síðasta tímabili í liði Jong AZ sem vann þá hollensku C-deildina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert