500 milljóna evru klásúla

Asensio er Madrídarliðinu dýrmætur.
Asensio er Madrídarliðinu dýrmætur. AFP

Real Madríd er með nýjan samning í bígerð fyrir Marco Asensio. Hann hefur leikið frábærlega undanfarna mánuði og virðist Madrídarliðið ekki ætla að brenna sig á mistökum Barcelona og hafa klásúlu leikmannsins of „lága“.

Neymar fór frá Barcelona á 222 milljónir evra, en Madrídarliðið mun gera klásúlu Asensio 500 milljónir evra. Spánverjinn er 21 árs gamall og hefur leikið með spænska landsliðinu. Undanfarið hefur hann verið kallaður leikmaður sinnar kynslóðar svo spennandi verður að fylgjast með honum á næstu árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert