McClaren ráðgjafi hjá Viðari og félögum

Steve McClaren
Steve McClaren AFP

Steve McClaren hefur verið ráðinn til ísraelska knattspyrnufélagsins Maccabi Tel Aviv, þar sem hann verður ráðgjafi þjálfara liðsins. McClaren mun m.a aðstoða Jordi Cruyff, knattspyrnustjóra liðsins, en þeir unnu saman hjá Manchester United um aldamótin. 

McClaren sótti um knattspyrnustjórastarf hjá Hearts í Skotlandi, en hann er ekki talinn einn þeirra fimm sem koma til greina sem næsti knattspyrnustjóri liðsins. 

McClaren starfaði síðast sem knattspyrnustjóri Derby í ensku B-deildinni en var rekinn í mars eftir slakt gengi. Hann hefur gegnt þjálfara- eða stjórastarfi hjá alls 13 félögum á löngum ferli.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert