Rúnar hélt hreinu í sigri

Rúnar Alex er að gera mjög góða hluti í Danmörku.
Rúnar Alex er að gera mjög góða hluti í Danmörku. Ljósmynd/Twitter-síða Nordsjælland

Rúnar Alex Rúnarsson og félagar í danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland höfðu betur gegn Helsingør, 1:0, á heimavelli sínum í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Rúnar Alex lék allan tímann á milli stanganna hjá Nordsjælland. 

Nordsjælland hefur farið virkilega vel af stað í deildinni og unnið fimm af fyrstu sex leikjum sínum og er liðið í toppsætinu með 15 stig, þremur meira en Midtjylland sem er í öðru sæti með 12 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert