Sjáðu íslensku mörkin í Noregi

Björn Bergmann Sigurðarson.
Björn Bergmann Sigurðarson. Ljósmynd/Molde

Þrír Íslendingar voru á skotskónum með liðum sínum í norsku knattspyrnunni um helgina. Kristján Flóki Finnbogason spilaði sinn fyrsta leik fyrir Start í B-deildinni og það tók hann aðeins rúmar 20 mínútur að komast á blað. Hann skoraði þá jöfnunarmark liðsins í 2:2 jafntefli gegn Tromsdalen á 81. mínútu eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 60. mínútu. Hér að neðan má sjá mark Kristjáns. 

Aron Elís Þrándarson skoraði í 3:2 tapi Álasunds gegn Tromsø í A-deildinni. Hann jafnaði þá metin í 2:2 á 54. mínútu en því miður fyrir hann nægði það ekki til sigurs því Tromsø skoraði sigurmark leiksins á 75. míntútu. Mark Arons má sjá hér að neðan. 

Björn Bergmann Sigurðarson skoraði sitt tólfta mark í norsku A-deildinni er hann skoraði fyrra mark Molde í 3:2 tapi gegn Stabæk. Mark Björns má sjá hér að neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert