Eniola Aluko, leikmaður Chelsea og enska landsliðsins, hefur nú skýrt frá hvaða kynþáttafordóma landsliðsþjálfarinn Mark Sampson sýndi henni. Hún er fædd í Nígeríu en flutti til Englands á fyrsta árinu sínu. Hún á marga ættingja í Nígeríu sem koma, eins og eðlilegt er, stundum í heimsókn.
Þegar von var á nokkrum þeirra á landsleik Englands á Wembley sagði Sampson henni að vera viss um að ættingjar hennar kæmu ekki með ebólu-vírusinn á Wembley. Aluko heldur því fram að hún hafi sagt enska knattspyrnusambandinu frá þessu í lok síðasta árs, en ekkert hafi gerst í málinu, segir hún í samtali við BBC.
Sampson hefur áður verið sakaður um kynþáttafordóma, en hann spurði leikmann enska liðsins sem var dökk á hörund hversu oft hún hefði verið handtekin.