Elías Már Ómarsson gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í 5:0-útisigri Gautaborgar á Landvetter í 2. umferð sænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í dag.
Elías kom Gautaborg í 2:0 á 50. mínútu og 19 mínútum síðar skoraði hann sitt þriðja mark.
Árni Vilhjálmsson skoraði svo öll mörk Jönköping í 3:2-sigri á útivelli gegn Utsiktens eftir framlengdan leik. Glæsilega gert hjá okkar mönnum.
Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði svo eitt mark fyrir Sundsvall sem vann 3:0-útisigur á Torstops.