Höskuldur skoraði tvö í bikarnum

Höskuldur skoraði tvö í dag.
Höskuldur skoraði tvö í dag. Ljósmynd/Halmstad

Höskuldur Gunnlaugsson skoraði tvö fyrstu mörk Halmstad sem hafði betur gegn Kristianstad, 3:1, í annarri umferð sænska bikarsins í knattspyrnu í dag. Tryggvi Hrafn Haraldsson var einnig í byrjunarliði Halmstad. 

Kristianstad leikur í þriðju efstu deild og var sigurinn öruggur hjá Halmstad sem leikur í efstu deild. Höskuldur skoraði fyrra mark sitt á 21. mínútu og það síðara á 36. mínútu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert