Barist um Björn Bergmann

Björn Bergmann Sigurðarson er eftirsóttur.
Björn Bergmann Sigurðarson er eftirsóttur. Wu Zhi Zhao

Nú er mikill áhugi á knattspyrnumanninum Birni Bergmanni Sigurðarsyni sem leikur í norsku deildinni. Björn Bergmann leikur með Molde, en greint var frá því í gær að rússneska félagið Rostov hefði áhuga á kappanum.

Molde hefur borist tilboð í leikmanninn frá öðrum liðum, en VG greinir frá því að nýtt tilboð frá Rostov hafi borist í gær. Telur norska fréttaveitan að tilboðið sé rúmlega tíu milljónir norskra króna, eða að minnsta kosti 136 milljónir íslenskra króna.

Magnús Agnar Magnússon er umboðsmaður Björns Bergmanns og Sverris Inga sem leikur hjá Rostov, en hann staðfestir að það sé áhugi á Birni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert