Alfreð lagði upp sigurmarkið

Alfreð í baráttunni gegn Leipzig í kvöld.
Alfreð í baráttunni gegn Leipzig í kvöld. AFP

Landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason lagði upp sigurmark Augsburg þegar liðið hafði betur gegn Leipzig á heimavelli í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Michael Gregoritsch skoraði eina mark leiksins á 4. mínútu eftir laglega sendingu frá Alfreð sem var tekinn af velli á 88. mínútu leiksins. Augsburg hefur byrjað tímabilið vel og er í 2.-4. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir meisturum Bayern München.

Bayern vann öruggan 3:0 útisigur gegn Schalke þar sem Robert Lewandowski, James Rodriguez og Arturo Vidal skoruðu mörkin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert