Eins og mbl.is greindi frá í gær varð Manuel Neuer, landsliðsmarkvörður Þjóðverja og Bayern München, fyrir því óláni að fótbrotna aftur skömmu eftir að hafa snúið aftur eftir hálfs árs fjarveru vegna fótbrots.
Nú er komið í ljós að vonast er til þess að Neuer geti snúið aftur til æfinga í janúar, en hann fór í aðgerð í dag eftir að hafa nú brotnað á rist á vinstri fæti.
Það er sami fótur og hann braut gegn Real Madrid í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í mars.