Neymar alveg brjálaður við samherja

Edinson Cavani og Neymar eru ósáttir.
Edinson Cavani og Neymar eru ósáttir. AFP

Brasilíska knattspyrnumanninum Neymar virðist vera nóg boðið eftir rifrildi við liðsfélaga sinn, úrúgvæska framherjann Edison Cavani, í leik PSG gegn Lyon í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu um helgina.

Kapparnir rifust þá um hvor þeirra ætti að taka vítaspyrnu í leiknum, en svo fór að Cavani tók hana en brást bogalistin. Samkvæmt Teamtalk hélt rifrildi þeirra áfram eftir leik og er Neymar sagður fara fram á það við forráðamenn PSG að þeir selji Cavani í janúar.

Franskir miðlar hafa greint frá því að Cavani sé með klásúlu í samningi sínum sem gefi honum ríflegan bónus verði hann markahæsti leikmaður PSG á tímabilinu. Neymar, sem varð dýrasti knattspyrnumaður heims í sumar, er einnig sagður hafa slíka klásúlu og er hitinn þeirra á milli orðinn mikill.

Á meðan hefur knattspyrnustjórinn Unai Emery ekki viljað blanda sér í málið og sagt að kapparnir verði að leysa það sín á milli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert