Neymar spilar ekki

Brasilíumaðurinn Neymar.
Brasilíumaðurinn Neymar. AFP

Brasilíska stórstjarnan Neymar verður ekki með Paris SG á morgun þegar liðið sækir Montpellier heim í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu.

Neymar, sem gekk í raðir Parísarliðsins frá Barcelona í sumar, er lítillega meiddur að sögn Unai Emery, þjálfara liðsins, og vill hann ekki taka áhættu með því að tefla Brasilíumanninum fram.

Neymar hefur farið afar vel af stað með Paris SG sem hefur unnið alla sex leiki sína. Hann hefur skorað fjögur mörk og hefur hefur lagt upp nokkur fyrir samherja sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert