Dortmund – Real Madrid stórleikur kvöldsins

Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, ræðir við leikmenn sína á …
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, ræðir við leikmenn sína á æfingu í gær. AFP

Önnur umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu hefst í kvöld en þá fara fram átta leikir í fjórum riðlum.

Stórleikur kvöldsins er viðureign Borussia Dortmund og Evrópumeistara Real Madrid sem eigast við á Signal Iduna Park, heimavelli Dortmund. Real Madrid vann APOEL Nicosia, 3:0, í fyrstu umferðinni en Dortmund, sem trónir á toppi þýsku 1. deildarinnar, tapaði fyrir Tottenham á Wembley, 3:1.

Ensku liðin Liverpool, Manchester City og Tottenham verða öll í eldlínunni í kvöld en leikir kvöldsins eru:

E-riðill:
Sevilla - Maribor
Spartak Moskva - Liverpool

F-riðill:
Manchester City - Shakhtar Donetsk
Napoli - Feyenoord

G-riðill:
Besiktas - Leipzig
Mónakó - Porto

H-riðill:
APOEL Nicosia - Tottenham
Dortmund - Real Madrid

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert