Hefðum sett þrjú eða fjögur alla aðra daga

Jordan Henderson svekktur í leiknum í kvöld.
Jordan Henderson svekktur í leiknum í kvöld. AFP

„Þetta er mjög svekkjandi,“ sagði Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, eftir 1:1-jafnteflið við Spartak Moskvu í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld.

„Við stjórnuðum leiknum frá upphafi til enda og hefðum átt að vinna þægilegan sigur. Við þurfum að passa það fyrst og fremst að fá ekki á okkur mörk,“ sagði Henderson, en Spartak komst yfir með marki beint úr aukaspyrnu.

„Alla aðra daga hefðum við skorað þrjú eða fjögur mörk. Frammistaðan var ágæt, en ekki nógu góð til að vinna leikinn. Við vörðumst vel en þurftum að vera vægðarlausari fyrir framan markið,“ sagði Henderson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert