Ronaldo hrekkur í gang

Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. AFP

Dani Carvajal, leikmaður Evrópu- og Spánarmeistara Real Madrid, segir að enginn í liðinu efist um að Cristiano Ronaldo komist fljótlega í markagírinn.

Ronaldo er ekki kominn á markalistann í spænsku deildinni á tímabilinu. Hann missti af fjórum fyrstu leikjunum vegna leikbanns og hann hefur ekki verið á skotskónum í síðustu tveimur leikjum liðsins. Ronaldo átti 18 marktilraunir í leikjunum gegn Real Betis og Alaves en tókst ekki að skora.

„Það er enginn sem efast um Ronaldo. Hann hrekkur í gang fljótlega,“ segir Carvajal en Real Madrid verður í eldlínunni í Meistaradeildinni í kvöld þegar liðið sækir Borussia Dortmund heim. Þar freistar liðið þess að leggja þýska liðið að velli í fyrsta sinn í sjö tilraunum á þeirra heimavelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert