Markið hjá Sverri – myndskeið

Sverrir Ingi Ingason.
Sverrir Ingi Ingason.

Landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason skoraði jöfnunarmark Rostov gegn Tosno úr vítaspyrnu í efstu deild rússnesku knattspyrnunnar í dag og opnaði þar með markareikning sinn fyrir félagið. Myndskeið af markinu má sjá hér í fréttinni en Ragnar Sigurðsson var einnig í eldlínunni.

Ragnar lék allan leikinn í markalausu jafntefli Rubin Kazan sem hefur 18 stig í 7. sæti. Rostov hefur 17 stig í 11. sæti og deildin afar jöfn.

Markið hjá Sverri má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert