Sterkt jafntefli hjá Lokeren

Ari Freyr Skúlason, Heimir Hallgrímsson og Sigurður Þórðarson skeggræða hlutina …
Ari Freyr Skúlason, Heimir Hallgrímsson og Sigurður Þórðarson skeggræða hlutina eftir leik með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn sem vinstri bakvörður þegar Lokeren gerði 1:1-jafntefli gegn Charleroi í 11. umferð belgísku A-deildarinnar í knattspyrnu karla í dag. 

Lokeren er taplaust í síðustu þremur deildarleikjum sínum, en liðið hefur gert tvö jafntefli og borið sigur úr býtum í einum í leikjunum þremur. 

Lokeren siglir enn lygnan sjó um miðja deild, en liðið hefur 12 stig og situr í tíunda sæti deildarinnar.

Lokeren er fimm stigum frá sjötta sæti sem er neðsta sætið sem veitir þátttökurétt í úrslitakeppni um belgíska meistaratitilinn og sjö stigum frá fallsæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert