Stuðningsmaður Everton, sem sló til Anthony Lopes, markvarðar Lyon, þegar Everton beið lægri hlut fyrir franska liðinu, 2:1, í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudagskvöld, skammast sín fyrir gjörðir sínar en kennir Everton um það sem gerðist.
Lögreglan í Merseyside rannsakar málið en umræddur stuðningsmaður hefur verið settur í lífstíðarbann frá heimavelli Everton. Málið hefur vakið talsverða athygli vegna þess að maðurinn hélt á barni á meðan hann sló til Lopes.
„Ég skammast mín fyrir það sem gerðist. Ég veit hins vegar að ég er enginn hálfviti,“ sagði maðurinn í samtali við breska blaðið Sunday People.
Maðurinn óttast að fyrrverandi kærasta hans og barnsmóðir muni nota atvikið til að koma í veg fyrir að hann geti varið tíma með syni þeirra. Hann gagnrýndi öryggisgæslu Everton og leikmenn á vellinum sem hann sagði að hefðu ógnað syni hans með því að „sveifla höndunum í átt að honum“.
Stuðningsmaðurinn fullyrðir að hlutirnir hafi þróast í þessa átt en áður en hann vissi af var hann kominn alveg að leikmönnunum. „Þetta var ekki viljandi en ég var of upptekinn við að öskra á þessa slöku leikmenn.“