Fyrsta deildarmark Diegos á ferlinum

Diego Jóhannesson, leikmaður Real Oviedo.
Diego Jóhannesson, leikmaður Real Oviedo.

Diego Jó­hann­es­son, leikmaður Real Oviedo í B-deild­inni á Spáni, skoraði annað marka liðsins þegar það sigraði Cordóba 2:0 í dag.

Diego kom inn á sem varamaður ellefu mínútum fyrir leikslok. Hann gulltryggði sigur Oviedo með marki í uppbótartíma leiksins.

Var þetta fyrsta deildarmark Diegos á ferlinum en hann er fæddur árið 1993 og hefur spilaði einn A-landsleik fyrir Íslands hönd. Oviedo er í 11. sæti B-deildarinnar með 14 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert