Real Madrid heldur í við toppliðin

Marcelo fagnar marki sínu fyrir Real Madrid gegn Eibar í …
Marcelo fagnar marki sínu fyrir Real Madrid gegn Eibar í kvöld. AFP

Real Madrid vann öruggan 3:0-sigur þegar liðið mætti Eibar á Santiago Bernabéu í lokaleik níundu umferðar spænsku efstu deildarinnar í knattspyrnu karla í kvöld.

Paulo Oliveira kom Real Madrid á bragðið þegar hann varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Marco Asensio og Marcelo bættu síðan við mörkum fyrir Real Madrid sem hefur 20 stig í þriðja sæti deildarinnar eftir þennan sigur.

Barcelona trónir á toppi deildarinnar með 25 stig og Valencia er í öðru sæti deildarinnar með 21 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert