Jón Dagur með þrennu fyrir Fulham

Jón Dagur Þorsteinsson skoraði þrennu í kvöld.
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði þrennu í kvöld. Ljósmynd/Fulham

Jón Dagur Þorsteinsson skoraði í kvöld þrennu með U23 ára liði Fulham í 4:1 útisigri gegn Wolves.

Jón Dagur er 18 ára gamall og skrifaði í byrjun ársins undir nýjan atvinnumannasamning við Fulham og er samningsbundinn Lundúnaliðinu til ársins 2019 en hann kom til félagsins frá HK árið 2015.

Jón Dagur hefur spilað með öllum yngri landsliðunum og er í U21 árs landsliðinu sem hann hefur spilað sex leiki með og skorað í þeim eitt mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert