Lið ársins í karlaflokki

Nokkrir af leikmönnunum sem eru í liði ársins.
Nokkrir af leikmönnunum sem eru í liði ársins. AFP

Tilkynnt var um lið ársins hjá körlunum á verðlaunahátíð FIFA í Lundúnum í kvöld og koma leikmennirnir úr Juventus, Paris SG, Real Madrid og Barcelona.

Í liði ársins eru: Buffon: Alves, Bonucci, Ramos, Marcelo; Modric, Kroos, Iniesta; Messi, Ronaldo, Neymar.

Puskas verðlaunin sem veitt eru leikmanni fyrir að skora fallegasta markið á árinu féll Frakkanum Oliver Giroud leikmanni Arsenal í skaut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert