Mat og drykkjum hent í Neymar

Neymar fær að líta rauða spjaldið.
Neymar fær að líta rauða spjaldið. AFP

Brasilíumaðurinn Neymar, leikmaður Paris SG, sakar stuðningsmenn Marseille um að hafa hent mat og drykkjum í sig þegar Paris SG mætti Marseille í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöld.

„Stuðningsmenn Marseille hentu í mig alls konar hlutum þegar ég tók hornspyrnurnar. Ég hefði getað fengið mér að borða. Þetta var brauð, appelsínusafar og Coca Cola. Þetta er ekki fótbolti,“ segir Neymar, sem var rekinn af velli undir lok leiksins þegar hann fékk að líta sitt annað gula spjald.

Staðan var þá 2:1 fyrir Marseille en Edison Cavani bjargaði stigi fyrir Parísarliðið þegar hann jafnaði metin í uppbótartíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert