Ronaldo valinn sá besti

Cristiano Ronaldo með verðlaunagripinn.
Cristiano Ronaldo með verðlaunagripinn. AFP

Portúgalinn Cristiano Ronaldo var útnefndur knattspyrnumaður ársins á verðlaunahátíð Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, í Lundúnum í kvöld.

Ronaldo hafði betur í baráttunni við Lionel Messi og Neymar en þetta er annað árið í röð sem hann hreppir þennan eftirsótta titil.

„Ég þakka öllum þeim sem kusu mig og ég er virkilega glaður. Þetta er frábær stund fyrir mig og er þakklátur stuðningsmönnum mínum, liðsfélögum og þjálfunum sem hafa stutt mig,“ sagði Ronaldo eftir að hafa tekið á móti viðurkenningu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert