Samúel með stórglæsilegt mark (myndband)

Samúel Kári Friðjónsson.
Samúel Kári Friðjónsson. Ljósmynd/Vålerenga

Samúel Kári Friðjónsson, knattspyrnumaður í norska A-deildarfélaginu Vålerenga, kom inn á sem varamaður í 7:1-stórsigrinum á Viking í gær. Samúel skoraði fimmta mark liðsins með tilþrifum. 

Hann fékk þá boltann í vítateig Víking, hélt boltanum á lofti og skoraði með mögnuðu skoti. Þetta glæsilega mark má sjá hér að neðan en það kemur eftir um þrjár og hálfa mínútu í myndbandinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert