Giampiero Ventura hefur verið rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Ítalíu eftir að hafa mistekist að koma þjóðinni á lokakeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Er þetta í fyrsta sinn síðan árið 1958 sem Ítalir verða ekki með á HM.
Ventura tók við Ítalíu í fyrra og tók þá við af Antonio Conte sem tók við liði Chelsea. Hann samdi til tveggja ára eftir að hafa síðast þjálfað lið Tórínó á Ítalíu.
Ítalía tapaði fyrir Svíþjóð í umspili um sæti á HM, en ekki er ljóst hver tekur við starfi hans.