Sara Björk skoraði aftur og flaug áfram

Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Wolfsburg.
Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með Wolfsburg. Ljósmynd/WfL Wolfsburg

Sara Björk Gunnarsdóttir var aftur á skotskónum fyrir þýska meistaraliðið Wolfsburg sem tryggði sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu eftir 3:3 jafntefli við Fiorentina í Íslendingaslag. Wolfsburg vann einvígið samanlagt 7:3.

Sara Björk byrjaði á bekknum í leiknum í kvöld en kom inn á í stöðunni 2:2 á 70. mínútu. Aðeins mínútu síðar skoraði hún og kom Wolfsburg í 3:2, áður en ítalska liðið jafnaði aftur og leikurinn endaði með jafntefli, 3:3.

Sara Björk skoraði tvö mörk í fyrri leik liðanna á Ítalíu þegar Wolfsburg vann 4:0-sigur. Sigrún Ella Einarsdóttir var allan tímann á varamannabekk Fiorentina í leiknum í Þýskalandi í kvöld.

Sænsku meistararnir í Linköping eru einnig komnir áfram eftir sigur á Sparta Prag 3:0 og 4:1 samanlagt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert