Einn elsti starfandi veðbankinn, William Hill, gerir ekki ráð fyrir sigri Íslands á HM í Rússlandi. Íslandi er raðað í 25. sæti af þjóðunum 32 hjá veðbankanum.
Þjóðirnar sem þykja ólíklegri en Ísland eru Íran, Marokkó, S-Kórea, Túnis, Panama og Sádi-Arabía auk þess sem jafn miklar líkur eru á því að Japan, Ástralía, Kostaríka og Egyptaland vinni keppnina og Ísland.
Þjóðverjar þykja líklegastir en þeir eru ríkjandi meistarar. Svíar þykja líklegastir Norðurlandaþjóða en þar er stuðullinn 100 á móti 1. Hjá Íslandi er hann 250 á móti 1.