Glæsilegt sjálfsmark (myndskeið)

Fankaty Dabo.
Fankaty Dabo. Ljósmynd/Twitter

Fankaty Dabo, leikmaður hollenska úrvalsdeildarliðsins Vitesse í knattspyrnu, skoraði glæsilegt sjálfsmark í hollensku deildinni í gær.

Dabo ætlaði greinilega að senda boltann á markvörð sinn af nokkuð löngu færi en ekki vildi betur til en að boltinn sveif yfir markvörðinn og í netið eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði. Dabo og félagar töpuðu fyrir Groningen, 4:2, og skoraði varnarmaðurinn fyrsta mark Groningen í leiknum.

Dabo er samningsbundinn Englandsmeisturum Chelsea en er í láni hjá Vitesse.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert