Albert fór illa með markvörðinn (myndskeið)

Albert Guðmundsson fagnar marki með PSV.
Albert Guðmundsson fagnar marki með PSV. Ljósmynd/twitter

Albert Guðmundsson skoraði í gær einu sinni sem oftar fyrir varalið PSV í hollensku B-deildinni í knattspyrnu þegar liðið vann Utrecht 2:0.

Albert skoraði þarna sitt 18. mark í síðustu 18 leikjum með liðinu, en eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði var markið einkar laglegt þar sem hann lék á markvörð andstæðinganna.

Al­bert hef­ur verið í hópn­um með aðalliði PSV í flest­um leikj­um þess í hol­lensku úr­vals­deild­inni á tíma­bil­inu og hef­ur komið við sögu í þrem­ur þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert