Verður Carvajal refsað?

Dani Carvajal.
Dani Carvajal. AFP

Dani Carvajal, leikmaður Spánar- og Evrópumeistara Real Madrid, á yfir höfði sér leikbann í fyrri leik Real Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

UEFA er að skoða hvort Carvajal hafi brotið reglu með því að næla sér með viljandi hætti í gult spjald í leiknum gegn APOEL í Meistaradeildinni í gærkvöld sem þýðir að hann er kominn í eins leiks bann.

Aganefnd UEFA gæti bætt einum leik við bannið verði leikmaðurinn fundinn sekur um að hafa brotið agareglur UEFA.

Real Madrid gulltryggði sæti sitt í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en liðið tekur á móti Borussia Dortmund í lokaumferð riðlakeppninnar 6. desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert