Balotelli skaut Nice áfram

Mario Balotelli.
Mario Balotelli. AFP

Skrautfuglinn Mario Balotelli skaut Nice áfram í 32-liða úrslitin í Evrópudeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Balotelli skoraði tvö mörk fyrir franska liðið sem fagnaði 3:1 sigri gegn belgíska liðinu Zulte-Waregem og sá sigur tryggði Nice annað sætið í riðlinum. Fyrir lokaumferðina er Lazio efst með 13 stig, Nice er með 9 stig, Zulte-Waregem 4 og Vitesse er á botninum með 2 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert