Ingvar fótbrotnaði

Ingvar Jónsson.
Ingvar Jónsson. mbl.is/Eggert

Landsliðsmarkvörðurinn Ingvar Jónsson varð fyrir því óláni að fótbrotna í leik sinna manna gegn Lilleström í lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær.

Ingvar fór meiddur af velli á 31. mínútu en eftir að hafa tekið útspark fann hann fyrir sársauka í vinstri fætinum og í ljós kom í læknisskoðun eftir leikinn að bein í legg hans brotnaði. Hann verður frá æfingum og keppni næstu sex vikurnar.

Ingvar spilaði alla 30 leiki Sandefjord í deildinni á tímabilinu en liðið endaði í 13. sæti af 16 liðum í deildinni og hélt sæti sínu. Hann hélt marki sínu hreinu í átta af þessum 30 leikjum.

Á dögunum gekk miðjumaðurinn Emil Pálsson frá samningi við Sandefjord og þá gerði félagið Stjörnunni tilboð í sóknarmanninn Hólmbert Aron Friðjónsson sem var hafnað af hálfu Garðabæjarliðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert