Hvaða slagorð verður á íslensku rútunni?

Íslenska rútan á EM í Frakklandi.
Íslenska rútan á EM í Frakklandi. Ljósmynd/twitter

Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, og Hyundai standa fyrir keppni um val á slagorði fyrir rútur þeirra landsliða sem taka þátt í HM 2018 í Rússlandi. 

Samskonar keppni var haldin í aðdraganda EM 2016 í Frakklandi, en þar var Ísland með Áfram Ísland! á rútunni sinni. 

Hver einstaklingur getur sent inn eina hugmynd að slagorði fyrir Ísland, en einnig er hægt að senda inn slíkt fyrir öll hin liðin í keppninni. 

Lokað verður fyrir fleiri hugmyndir 28. febrúar og í kjölfarið mun FIFA velja þær bestu sem stuðningsmenn geta síðan kosið um.

Frekari upplýsingar má finna á síðu FIFA hér fyrir neðan: 

Vefur FIFA

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert