Ari talar íslensku við stuðningsmenn Lokeren

Ari Freyr Skúlason
Ari Freyr Skúlason Ljósmynd/Golli

Ari Freyr Skúlason, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Lokeren í Belgíu er með skemmtileg skilaboð til stuðningsmanna félagsins á Twitter-síðu þess í dag. Þar hvetur hann aðdáendurna áfram á íslensku. 

Framundan er leikur gegn Waasland Beveren, sem eru nágrannar og erkifjendur Lokeren. Ari Freyr kallar eftir stuðningi aðdáendanna á skemmtilegan máta eins og sjá má hjá að neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert