Viðar Örn tryggði Maccabi bikartitil

Viðar Örn fagnar sigurmarki sínu í kvöld.
Viðar Örn fagnar sigurmarki sínu í kvöld. Ljósmynd/Maccabi Tel Aviv

Viðar Örn Kjartansson var hetjan í 1:0-sigri Maccabi Tel Aviv á Hapoel Be'er Sheva í úrslitaleik ísraelska deildabikarsins í knattspyrnu í kvöld. Viðar kom inn á sem varamaður á 75. mínútu og skoraði sigurmarkið átta mínútum síðar með skalla eftir fyrirgjöf. 

Þetta er fyrsti titilinn sem Viðar vinnur í Ísrael, en hann kom til Maccabi fyrir síðustu leiktíð. Viðar hefur leikið 13 leiki á leiktíðinni og var þetta fjórða mark Selfyssingsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert