Talið að Zidane hafi áhuga á Salah

Mo Salah hefur farið á kostum í vetur.
Mo Salah hefur farið á kostum í vetur. AFP

Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri Real Madid, er afskaplega hrifinn af Egyptanum Mo Salah. Hann hefur blómstrað hjá Liverpool í vetur, er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni og var valinn besti knattspyrnumaður Afríku árið 2017.

„Salah er frábær leikmaður. Hann sýndi það hjá Roma og gerir það núna hjá Liverpool. Hann er ungur og er stöðugt að bæta sig,“ sagði Zidane en spænska blaðið Marca  telur líklegt að Madrídingar muni bjóða í Salah.

„Ég tala ekki mikið um aðra leikmenn en hann er leikmaður sem ég met mikils,“ bætti Zidane við.

Áður hafði Hector Cuper, landsliðsþjálfari Egyptalands, sagt að hann hefði heimildir fyrir því að Real Madrid hefði áhuga á Salah.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert