Barcelona endurheimti í kvöld sex stiga forskot á toppi spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu.
Börsungar tóku á móti Deportivo La Coruna og unnu sannfærandi sigur, 4:0. Luis Suárez skoraði tvö af mörkum Katalóníuliðsins og þeir Lionel Messi og Paulinho skoruðu sitt markið hvor.
Barcelona er með 42 stig í toppsæti deildarinnar. Atlético Madrid er í öðru sæti með 36 stig og Valencia í þriðja sætinu með 34 stig. Nýkrýndir heimsmeistarar Real Madrid eru með 31 stig í fjórða sætinu en eiga leik til góða.