Hægt að bera þá saman við Maradona og Pelé

Cristiano Ronaldo og Gianluigi Buffon ræða málin eftir leik.
Cristiano Ronaldo og Gianluigi Buffon ræða málin eftir leik. AFP

„Ronaldo er magnaður meistari. Hann og Messi gera ótrúlega mikið fyrir sín lið og það er hægt að bera þá saman við Maradona og Pelé,“ sagði Gianluigi Buffon, markmaður Juventus, eftir 3:0-tap fyrir Real Madrid í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. 

Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk í leiknum. Síðara markið var úr glæsilegri hjólhestaspyrnu. Buffon er nánast búinn að útiloka að Juventus geti snúið einvíginu sér í vil á útivelli. 

„Við vorum að spila við meistara. Það er svekkjandi að við komumst ekki áfram í þessari keppni, en þetta er einfalt; þeir eru sterkari,“ bætti Buffon við. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert