PAOK kynnir Sverri Inga með stæl (myndskeið)

Sverrir Ingi Ingason og Luka Modric eigast við á HM …
Sverrir Ingi Ingason og Luka Modric eigast við á HM í Rússlandi síðasta sumar. mbl.is/Eggert

Gríska knattspyrnuliðið PAOK staðfestir komu landsliðsmannsins Sverris Inga Ingasonar til félagsins með skemmtilegu myndskeiði í dag en Sverrir skrifaði í gær undir þriggja og hálfs árs samning við gríska toppliðið.

Grikkirnir kaupa Sverri af Rostov og samkvæmt rússneskum fjölmiðlum er kaupverðið fjórar milljónir evra, eða um 550 milljónir íslenskra króna, og árslaun Sverris um ein milljón evra. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá þegar Sverrir er kynntur til leiks.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert